Stoðtæki
Efri útlimir
Neðri útlimir
Fyrir ofan hné
Fyrir neðan hné
Fætur og ökklar
Útlitsvörur
Hafðu samband
Lausnir
Stoðtækjalausnir fyrir aflimun neðan við hné
Stoðtækjafræðingar okkar vinna með þér að því að greina lífsstíl þinn og forgangsatriði. Í framhaldinu hönnum við og smíðum stoðtæki sem gerir þér kleift að lifa og hreyfa þig á þann hátt sem þú vilt. Sú tegund stoðtækis sem hentar þér best fer alltaf eftir einstaklingsbundnu ástandi og þörfum.
Stoðtæki
Finnum bestu lausnina eftir aflimun fyrir neðan hné
Hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu framleiðum við stoðtæki sem styðja við hreyfigetu og virkni í daglegu lífi – hvort sem um ræðir aflimun neðan við hné eða meðfæddan útlimamissi.
Aflimun neðan við hné ( TT)
Aflimun neðan við hné (Transtibial Amputation – TT) er skurðaðgerð þar sem fóturinn er fjarlægður í gegnum neðri hluta fótleggsins. Þú heldur hnéliðnum, en eiginleikar stoðtækisins fara að hluta til eftir lengd stúfs.
Það er lykilatriði að tryggja stöðuga og þægilega aðlögun, og ferlið hefst á því að velja rétta gerð af hulsu og festingaraðferð. Það eru mismunandi leiðir til að festa stoðtækið við fótlegginn: Ermi sem þú rúllar á efri hluta stoðtækisins og upp yfir lærið, pinnalás sem þér er „smellt“ í stoðtækið, með snúru eða með lofttæmi.
Þú notar einnig hulsu, sem er yfirleitt úr sílikoni eða pólýúretani, til að vernda stúfinn. Sérfræðingar okkar vinna með þér að því velja lausn sem hentar þínum þörfum og lífsstíl.

Mismunur á lengd fóta (PFFD)
Proximal femoral focal deficiency (PFFD) er meðfæddur kvilli sem hefur áhrif á mjaðmabein og efri hluta lærleggsins, og veldur verulegum mun á lengd fóta.
Í sumum tilfellum er hægt að jafna lengdarmun fótanna með því að hækka skóinn á styttri fætinum. Í öðrum tilfellum veitir sérsmíðaður gervifótur fyrir stutta fótlegginn betri stöðugleika og jafnvægi fyrir þig. Stoðtækjafræðingar okkar geta smíðað gervifót þannig að hann hafi pláss fyrir líffræðilega fótinn þinn, en um leið veiti hann aukinn stuðning fyrir veikari hluta fótleggsins. Þú getur samt notað venjulega skó með þessari lausn, þar sem gervifótur er settur undir líffræðilega fótinn þinn. Stundum getur verið nauðsynlegt að bæta við lærlegg, svo stoðtækið sitji stöðugra á fætinum.

Þjónusta
Við tökum mið af þínum þörfum
Hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu tökum við mið af þínum þörfum, markmiðum og líkamlegri getu - sem við vitum að getur breyst með tímanum.
Tímapantanir
Það er auðvelt að panta tíma hjá sérfræðingum okkar hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu.
Stillingar og aðlögun
Við tryggjum að stoðtækið þitt passi sem best og bjóðum upp á reglulegar stillingar eftir þörfum.
Greiðsluþátttaka
Við svörum með ánægju öllum spurningum um kostnað við kaup á stoðtækjum.
Tilvísanir
Hafðu samband við ForMotion Stoðtækjaþjónustu til að sjá hvort þú þarft tilvísun fyrir þá þjónustu sem þú óskar eftir.
FAQ
Algengar spurningar
Við höfum tekið saman svör við algengustu spurningunum um stoðtækjaþjónustu okkar og þá sérfræðiráðgjöf sem við bjóðum upp á.
Hvernig panta ég tíma?
Til þess að panta tíma hjá stoðtækjafræðingi getur þú sent okkur tölvupóst eða haft samband við okkur í síma 515 1300.
Þarf ég tilvísun frá lækninum mínum til að heimsækja ForMotion Stoðtækjaþjónustu?
Til að eiga rétt á greiðslu eða endurgreiðslu þarftu tilvísun frá lækni eða sérfræðingi. Ef þú ert að leita að hjálpartækjum sem þú ætlar að borga fyrir sjálfur er tilvísun ekki nauðsynleg.
Við hverju get ég búist við í minni fyrstu heimsókn?
Fyrsta heimsókn þín til ForMotion Stoðtækjaþjónustu mun byrja með viðtali. Við munum spyrja þig spurninga um hvernig þér líður og hverju þú vilt áorka með því að vinna með okkur. Þetta hjálpar okkur að átta okkur á þínum þörfum og hefja samtal um hvaða lausn gæti hentað þér best. Eftir stutta líkamlega skoðun gætum við tekið gifsafsteypu, þrívíddarskönnun eða aðrar mælingar, allt eftir því hvaða lausn þú þarft og hentar þér. Við höfum fjölda lausna á lager hjá okkur, en ef við þurfum að búa til sérsniðna lausn, munum við skipuleggja tíma fyrir þig til að prófa hana og fá hana rétt stillta af stoðtækjafræðingi.
Hvers konar greiðslumáta samþykkið þið?
Þú getur greitt með reiðufé, debetkorti eða kreditkorti hjá okkur. Í mörgum tilfellum greiða Sjúkratryggingar Íslands hluta af kostnaði við kaup á hjálpartækjum, en til þess þarf að fá "Umsókn um styrk til kaupa hjálpartækis" útfyllta af lækni. Við erum með samning við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) varðandi kaup á stoðtækjum og spelkum. Sérfræðingar okkar leiðbeina fúslega um val á stuðningstækjum, m.a. með tilliti til samnings SÍ.
Upplýsingar
Gagnlegar upplýsingar
Við gerum okkur grein fyrir því að það getur verið erfitt eða ruglingslegt að finna rétta hjálpartækið. Þú getur fundið gagnlegt efni hér á síðunni okkar og ekki hika við að hafa samband við okkur til að fá svör við spurningum þínum. Við erum hér til að leiðbeina þér í gegnum allt ferlið.
Staðsetning
Hvar er ForMotion Stoðtækjaþjónusta til húsa?
Verið velkomin til okkar að Grjóthálsi 1-3, við erum með opið alla virka daga frá 08:30 – 16:00.