STOÐTÆKJAÞJÓNUSTA
Um ForMotion
Stoðtæki
Spelkur
Önnur þjónusta
Upplýsingar

Stoðtæki

Efri útlimir
Neðri útlimir
Útlitsvörur
Hafðu samband
Lausnir

Útlitsvörur fyrir stoðtæki

ForMotion Stoðtækjaþjónusta býður upp á útlitsvörur fyrir stoðtæki fyrir einstaklinga sem vilja annaðhvort náttúrulegt útlit eða skera sig úr með sérstakri hönnun. Við vinnum með þér að því að skapa stoðtæki sem uppfyllir þínar óskir um útlit, á sama tíma og það styður við hreyfanleika og virkni í daglegu lífi.
FM_UL-AE_Close-up_Lifestyle-Image_02
Útlitsvörur

Fjölbreytt úrval af útlitsvörum

Við skiljum að missir útlims skapar áskoranir sem snerta meira en bara líkamlega virkni og hreyfanleika.
FM_UL-BE_Lifestyle-Image_01
Stoðtæki fyrir handleggi, hendur og fætur geta verið sérsniðin með fjölbreyttum áferðum og sílikonhlífum til að líkjast útliti þínu sem best. Ef þú vilt frekar skera þig úr, getur þú valið úr fjölbreyttu litavali fyrir stoðtækið þitt — spurðu einfaldlega sérfræðinginn þinn um valkostina.
Hvaða útlit sem þú kýst, tryggjum við að stoðtækjalausnin þín veiti þér bestu mögulegu forsendur til að hreyfa þig af öryggi og þægindum í daglegu lífi. 
Þjónusta

Við tökum mið af þínum þörfum

Hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu tökum við mið af þínum þörfum, markmiðum og líkamlegri getu - sem við vitum að getur breyst með tímanum.

Tímapantanir

Það er auðvelt að panta tíma hjá sérfræðingum okkar hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu.

Stillingar og aðlögun

Við tryggjum að stoðtækið þitt passi sem best og bjóðum upp á reglulegar stillingar eftir þörfum.

Greiðsluþátttaka

Við svörum með ánægju öllum spurningum um kostnað við kaup á stoðtækjum.

Tilvísanir

Hafðu samband við ForMotion Stoðtækjaþjónustu til að sjá hvort þú þarft tilvísun fyrir þá þjónustu sem þú óskar eftir.
Hafðu samband
FAQ

Algengar spurningar

Við höfum tekið saman svör við algengustu spurningunum um stoðtækjaþjónustu okkar og þá sérfræðiráðgjöf sem við bjóðum upp á.

Hvernig panta ég tíma?

Til þess að panta tíma hjá stoðtækjafræðingi getur þú sent okkur tölvupóst eða haft samband við okkur í síma 515 1300. 

Þarf ég tilvísun frá lækninum mínum til að heimsækja ForMotion Stoðtækjaþjónustu? 

Til að eiga rétt á greiðslu eða endurgreiðslu þarftu tilvísun frá lækni eða sérfræðingi. Ef þú ert að leita að hjálpartækjum sem þú ætlar að borga fyrir sjálfur er tilvísun ekki nauðsynleg.

Við hverju get ég búist við í minni fyrstu heimsókn?

Fyrsta heimsókn þín til ForMotion Stoðtækjaþjónustu mun byrja með viðtali. Við munum spyrja þig spurninga um hvernig þér líður og hverju þú vilt áorka með því að vinna með okkur. Þetta hjálpar okkur að átta okkur á þínum þörfum og hefja samtal um hvaða lausn gæti hentað þér best. Eftir stutta líkamlega skoðun gætum við tekið gifsafsteypu, þrívíddarskönnun eða aðrar mælingar, allt eftir því hvaða lausn þú þarft og hentar þér. Við höfum fjölda lausna á lager hjá okkur, en ef við þurfum að búa til sérsniðna lausn, munum við skipuleggja tíma fyrir þig til að prófa hana og fá hana rétt stillta af stoðtækjafræðingi.

Hvers konar greiðslumáta samþykkið þið?

Þú getur greitt með reiðufé, debetkorti eða kreditkorti hjá okkur. Í mörgum tilfellum greiða Sjúkratryggingar Íslands hluta af kostnaði við kaup á hjálpartækjum, en til þess þarf að fá "Umsókn um styrk til kaupa hjálpartækis" útfyllta af lækni. Við erum með samning við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) varðandi kaup á stoðtækjum og spelkum. Sérfræðingar okkar leiðbeina fúslega um val á stuðningstækjum, m.a. með tilliti til samnings SÍ.
Upplýsingar

Gagnlegar upplýsingar

Við gerum okkur grein fyrir því að það getur verið erfitt eða ruglingslegt að finna rétta hjálpartækið. Þú getur fundið gagnlegt efni hér á síðunni okkar og ekki hika við að hafa samband við okkur til að fá svör við spurningum þínum. Við erum hér til að leiðbeina þér í gegnum allt ferlið.
Staðsetning

Hvar er ForMotion Stoðtækjaþjónusta til húsa?

Verið velkomin til okkar að Grjóthálsi 1-3, við erum með opið alla virka daga frá 08:30 – 16:00.
Nánari upplýsingar
ForMotion_map-graphic_en-global
Velkomin til ForMotion
Mannauður
Laus störf
Hafðu samband
Hvar erum við?
Skjólstæðingar
Upplýsingar
Algengar spurningar
Fagaðilar
Um ForMotion
Veldu land
Iceland
Íslenska
© 2025, ForMotion Stoðtækjaþjónusta