STOÐTÆKJAÞJÓNUSTA
Um ForMotion
Stoðtæki
Spelkur
Önnur þjónusta
Upplýsingar

Stoðtæki

Efri útlimir
Neðri útlimir
Fyrir ofan hné
Fyrir neðan hné
Fætur og ökklar
Útlitsvörur
Hafðu samband
Lausnir

Stoðtækjalausnir fyrir fætur og ökkla

Við leggjum áherslu á að skilja einstaklingsbundnar þarfir þínar svo við getum hannað sérsniðið stoðtæki sem veitir bæði stöðugleika og þægindi, og stuðlar þannig að aukinni hreyfigetu og bættum lífsgæðum.
FM_LL-BK_Penny_Lifestyle-Image_09

Að finna bestu stoðtækjalausnir fyrir fætur og ökkla

Stoðtækjalausnir ForMotion fyrir fætur og ökkla styðja við bataferlið og hjálpa fólki að endurheimta hreyfigetu eftir aflimun. Hvert ferli felur í sér mismunadi aðstæður og áskoranir, en sérfræðingar okkar vinna náið með þér að því að finna lausn sem hentar þínum þörfum – óháð því hvar á fætinum aflimunin hefur átt sér stað. Við byggjum á áralangri reynslu og víðtækri þekkingu á fjölbreyttum gerðum stoðtækja og vitum hvaða lausnir henta best við mismunandi aðstæður.
FM_Clinicians_Lifestyle-Image_06

Aflimun á hluta fótar (PF)

Hér er átt við aðgerð þar sem fjarlægður er hluti af beinagrind fótarins. Sú tegund stoðtækis sem hentar best fer eftir því hversu mikið og hvaða hlutar fótarins eru eftir. Stoðtækjafræðingar okkar munu leiða þig í gegnum allt ferlið við að velja og smíða stoðtæki sem styður við hreyfanleika þinn og hjálpar þér að endurheimta og viðhalda frelsi til að hreyfa þig.

Hvert ferli hefst á því að tryggja góða dreifingu þyngdar, þannig að álag verði jafnt til að veita stöðugleika og stuðning. Ef tærnar eða fremri hluti fótarins hafa verið fjarlægðir, geta lausnir meðal annars falið í sér sérsmíðað innlegg sem sett er í skóinn eða mótað sílikonstoðtæki sem festist við fótinn. Ef aflimunin er nær aftari hluta fótarins, getur verið hagkvæmt að nota stoðtæki sem nær hærra upp á fótlegginn til að auka stöðugleika.

Aflimun við ökkla (AD)

Við aflimum á ökkla er fóturinn fjarlægður í sjálfum ökklaliðnum. Þrátt fyrir að til séu mismunandi skurðaðferðir, þarf afgangsútlimurinn að vera nægilega sterkur og stöðugur til að styðja þig með aðstoð stoðtækis. Stoðtækjafræðingar okkar vinna með þér að því að velja og hanna sérsniðið stoðtæki sem gerir þér kleift að hreyfa þig á þægilegan og öruggan hátt.

Gott og stöðugt aðlögun stoðtækis er lykilatriði. Ferlið hefst á því að velja rétta gerð ökkla-hulsu og fótar sem hentar þínum afgangsútlim. Hönnun hulsunnar tekur mið af lögun og ástandi útlimsins, en fóturinn er oft smíðaður úr koltrefjum með snyrtilegu yfirborði í stærð og lögun sem passar við hinn fótinn.
Þjónusta

Við tökum mið af þínum þörfum

Hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu tökum við mið af þínum þörfum, markmiðum og líkamlegri getu - sem við vitum að getur breyst með tímanum.

Tímapantanir

Það er auðvelt að panta tíma hjá sérfræðingum okkar hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu.

Stillingar og aðlögun

Við tryggjum að stoðtækið þitt passi sem best og bjóðum upp á reglulegar stillingar eftir þörfum.

Greiðsluþátttaka

Við svörum með ánægju öllum spurningum um kostnað við kaup á stoðtækjum.

Tilvísanir

Hafðu samband við ForMotion Stoðtækjaþjónustu til að sjá hvort þú þarft tilvísun fyrir þá þjónustu sem þú óskar eftir.
Hafðu samband
FAQ

Algengar spurningar

Við höfum tekið saman svör við algengustu spurningunum um stoðtækjaþjónustu okkar og þá sérfræðiráðgjöf sem við bjóðum upp á.

Hvernig panta ég tíma?

Til þess að panta tíma hjá stoðtækjafræðingi getur þú sent okkur tölvupóst eða haft samband við okkur í síma 515 1300.

Þarf ég tilvísun frá lækninum mínum til að heimsækja ForMotion Stoðtækjaþjónustu?

Til að eiga rétt á greiðslu eða endurgreiðslu þarftu tilvísun frá lækni eða sérfræðingi. Ef þú ert að leita að hjálpartækjum sem þú ætlar að borga fyrir sjálfur er tilvísun ekki nauðsynleg.

Við hverju get ég búist við í minni fyrstu heimsókn?

Fyrsta heimsókn þín til ForMotion Stoðtækjaþjónustu mun byrja með viðtali. Við munum spyrja þig spurninga um hvernig þér líður og hverju þú vilt áorka með því að vinna með okkur. Þetta hjálpar okkur að átta okkur á þínum þörfum og hefja samtal um hvaða lausn gæti hentað þér best. Eftir stutta líkamlega skoðun gætum við tekið gifsafsteypu, þrívíddarskönnun eða aðrar mælingar, allt eftir því hvaða lausn þú þarft og hentar þér. Við höfum fjölda lausna á lager hjá okkur, en ef við þurfum að búa til sérsniðna lausn, munum við skipuleggja tíma fyrir þig til að prófa hana og fá hana rétt stillta af stoðtækjafræðingi.

Hvers konar greiðslumáta samþykkið þið?

Þú getur greitt með reiðufé, debetkorti eða kreditkorti hjá okkur. Í mörgum tilfellum greiða Sjúkratryggingar Íslands hluta af kostnaði við kaup á hjálpartækjum, en til þess þarf að fá "Umsókn um styrk til kaupa hjálpartækis" útfyllta af lækni. Við erum með samning við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) varðandi kaup á stoðtækjum og spelkum. Sérfræðingar okkar leiðbeina fúslega um val á stuðningstækjum, m.a. með tilliti til samnings SÍ.
Upplýsingar

Gagnlegar upplýsingar

Við gerum okkur grein fyrir því að það getur verið erfitt eða ruglingslegt að finna rétta hjálpartækið. Þú getur fundið gagnlegt efni hér á síðunni okkar og ekki hika við að hafa samband við okkur til að fá svör við spurningum þínum. Við erum hér til að leiðbeina þér í gegnum allt ferlið.
Staðsetning

Hvar er ForMotion Stoðtækjaþjónusta til húsa?

Verið velkomin til okkar að Grjóthálsi 1-3, við erum með opið alla virka daga frá 08:30 – 16:00.
Nánari upplýsingar
ForMotion_map-graphic_en-global
Velkomin til ForMotion
Mannauður
Laus störf
Hafðu samband
Hvar erum við?
Skjólstæðingar
Upplýsingar
Algengar spurningar
Fagaðilar
Um ForMotion
Veldu land
Iceland
Íslenska
© 2025, ForMotion Stoðtækjaþjónusta