Önnur þjónusta
Skór og innlegg
Bæklunarskór
Innlegg
Stoðtæki fyrir börn
Þrýstingsvörur
Líkamsstaða og hreyfigeta
Hafðu samband
Lausnir
Stoðtækjaþjónusta fyrir bæklunarskó
Hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu færðu faglega ráðgjöf við val á viðeigandi heilsu- og bæklunarskóm, sem eru hannaðir til að draga úr verkjum og meðhöndla vandamál í fótum. Sérfræðingar okkar vinna með þér til að skilja hvernig þú gengur og hreyfir þig og hvað veldur óþægindunum.
Stoðkerfislausnir
Heilsu- og bæklunarskór
Við bjóðum upp á lausnir sem veita aukinn stuðning og þægindi fyrir fætur sem verða fyrir álagi eða hafa sérstakar þarfir.
Langar göngur á hörðu undirlagi, endurtekin fótahreyfing eða einfaldlega rangur skóbúnaður getur leitt til meiðsla og óþæginda. Notkun rétts skófatnaðar getur komið í veg fyrir ýmis vandamál tengd stoðkerfinu og margs konar kvillum á helstu álagspunktum líkamans (eins og t.d. mjóbaki, hnjám, ökklum og fótum). Í samræmi við ástand þitt geta sérfræðingar okkar mælt með tilbúinni eða sérsniðinni lausn.
ForMotion Stoðtækjaþjónusta er með samning við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ), en í mörgum tilfellum greiðir SÍ hluta af kostnaði við kaup á skóm og innleggjum. Til þess þarf að fá umsókn frá lækni. Sérfræðingar okkar leiðbeina fúslega um val á skóm/innleggjum, m.a. með tilliti til samnings SÍ.
Við bjóðum upp á fjölbreyttar lausnir - og mikilvægt er að velja skó sem hafa eftirfarandi eiginleika:
ForMotion Stoðtækjaþjónusta er með samning við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ), en í mörgum tilfellum greiðir SÍ hluta af kostnaði við kaup á skóm og innleggjum. Til þess þarf að fá umsókn frá lækni. Sérfræðingar okkar leiðbeina fúslega um val á skóm/innleggjum, m.a. með tilliti til samnings SÍ.
Við bjóðum upp á fjölbreyttar lausnir - og mikilvægt er að velja skó sem hafa eftirfarandi eiginleika:
- Rúmgott tábox sem leyfir tám að dreifast náttúrulega
- Tungu- og reimakerfi, rennilása á báðum hliðum eða frönskum rennilásum (Velcro) til að herða skóna
- Stífan hælkappa og snúningsþolinn sóla til að veita meiri stöðugleika
- Þægilega lengd og breidd
Þjónusta
Við tökum mið af þínum þörfum
Hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu tökum við mið af þínum þörfum, markmiðum og líkamlegri getu - sem við vitum að getur breyst með tímanum.
Tímapantanir
Það er auðvelt að panta tíma hjá sérfræðingum okkar hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu.
Stillingar og aðlögun
Við tryggjum að stoðtækið þitt passi sem best og bjóðum upp á reglulegar stillingar eftir þörfum.
Greiðsluþátttaka
Við svörum með ánægju öllum spurningum um kostnað við kaup á stoðtækjum.
Tilvísanir
Hafðu samband við ForMotion Stoðtækjaþjónustu til að sjá hvort þú þarft tilvísun fyrir þá þjónustu sem þú óskar eftir.
FAQ
Algengar spurningar
Við höfum tekið saman svör við algengustu spurningunum um stoðtækjaþjónustu okkar og þá sérfræðiráðgjöf sem við bjóðum upp á.
Hvernig panta ég tíma?
Til þess að panta tíma hjá stoðtækjafræðingi getur þú sent okkur tölvupóst eða haft samband við okkur í síma 515 1300.
Þarf ég tilvísun frá lækninum mínum til að heimsækja ForMotion Stoðtækjaþjónustu?
Til að eiga rétt á greiðslu eða endurgreiðslu þarftu tilvísun frá lækni eða sérfræðingi. Ef þú ert að leita að hjálpartækjum sem þú ætlar að borga fyrir sjálfur er tilvísun ekki nauðsynleg.
Við hverju get ég búist við í minni fyrstu heimsókn?
Fyrsta heimsókn þín til ForMotion Stoðtækjaþjónustu mun byrja með viðtali. Við munum spyrja þig spurninga um hvernig þér líður og hverju þú vilt áorka með því að vinna með okkur. Þetta hjálpar okkur að átta okkur á þínum þörfum og hefja samtal um hvaða lausn gæti hentað þér best. Eftir stutta líkamlega skoðun gætum við tekið gifsafsteypu, þrívíddarskönnun eða aðrar mælingar, allt eftir því hvaða lausn þú þarft og hentar þér. Við höfum fjölda lausna á lager hjá okkur, en ef við þurfum að búa til sérsniðna lausn, munum við skipuleggja tíma fyrir þig til að prófa hana og fá hana rétt stillta af stoðtækjafræðingi.
Hvers konar greiðslumáta samþykkið þið?
Þú getur greitt með reiðufé, debetkorti eða kreditkorti hjá okkur. Í mörgum tilfellum greiða Sjúkratryggingar Íslands hluta af kostnaði við kaup á hjálpartækjum, en til þess þarf að fá "Umsókn um styrk til kaupa hjálpartækis" útfyllta af lækni. Við erum með samning við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) varðandi kaup á stoðtækjum og spelkum. Sérfræðingar okkar leiðbeina fúslega um val á stuðningstækjum, m.a. með tilliti til samnings SÍ.
Upplýsingar
Gagnlegar upplýsingar
Við gerum okkur grein fyrir því að það getur verið erfitt eða ruglingslegt að finna rétta hjálpartækið. Þú getur fundið gagnlegt efni hér á síðunni okkar og ekki hika við að hafa samband við okkur til að fá svör við spurningum þínum. Við erum hér til að leiðbeina þér í gegnum allt ferlið.
Staðsetning
Hvar er ForMotion Stoðtækjaþjónusta til húsa?
Verið velkomin til okkar að Grjóthálsi 1-3, við erum með opið alla virka daga frá 08:30 – 16:00.