STOÐTÆKJAÞJÓNUSTA
Um ForMotion
Stoðtæki
Spelkur
Önnur þjónusta
Upplýsingar

Spelkur

Efri líkami
Höfuð og háls
Bak
Öxl
Olnbogi
Úlnliður og hendi
Neðri líkami
Hafðu samband
Lausnir

Stoðtækjaþjónusta fyrir höfuð og háls

Við aðstoðum fólk við að meðhöndla ýmis vandamál og meiðsli sem hafa áhrif á brjóstkassa, háls og höfuð. Sérfræðingar okkar vinna með þér til að skilja ástand þitt og mæla með spelku sem veitir þægilegan og leiðréttandi stuðning. Markmið okkar er að finna lausn sem veitir þér besta mögulega stuðning og hámarks hreyfanleika miðað við þitt ástand.
FM_Spine_Lifestyle-Image_02

Spelkur fyrir höfuð og háls

Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af spelkum fyrir höfuð og háls. Sérfræðingar okkar hjálpa þér að velja þá lausn sem hentar þér best.
Miami-J-Select_Lifestyle-Image_01

Hálskragar

Hálskragar eru notaðir til að meðhöndla ýmis vandamál, svo sem tauga- og vöðvasjúkdóma, langvinna sjúkdóma, eftir skurðaðgerðir eða meiðsli, og til að draga úr verkjum.

  • Stífur hálskragi – takmarkar hreyfingu og styður við hálsinn til að hjálpa við bata eftir langvinna verki, meiðsli eða aðgerð.
  • Minerva-spelka – styður og styrkir bæði hálshrygg (cervical) og efri hluta brjósthryggjar (thoracal). Hún er notuð við hálsmeiðslum, óstöðugleika í hrygg eða eftir aðgerðir.
Sérfræðingar okkar aðstoða við að finna rétta gerð og stærð sem er bæði þægileg og árangursrík.

Hjálmar

Hjálmarnir sem við bjóðum upp á eru hannaðir til að vernda höfuðið, draga úr hættu á meiðslum eða stuðla að bataferli. Ef þú færð tíð flogaköst eða ert í hættu á að lemja höfuðið harkalega, geturðu fengið mikilvæga vörn með hjálmi. Við höfum einnig sérstaka hjálma til að vernda höfuðið á meðan á bataferlinu stendur, ef þú hefur til dæmis hlotið höfuðkúpuáverka eða gengist undir heilaaðgerð. Við bjóðum einnig upp á einstaklingsmiðaða hjálma fyrir þig sem þarft til dæmis sérsniðinn reiðhjálm eða reiðhjólahjálm.
Þjónusta

Við tökum mið af þínum þörfum

Hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu tökum við mið af þínum þörfum, markmiðum og líkamlegri getu - sem við vitum að getur breyst með tímanum.

Tímapantanir

 Það er auðvelt að panta tíma hjá sérfræðingum okkar hjá ForMotion Stoðtækjaþjónustu.

Stillingar og aðlögun 

Við tryggjum að stoðtækið þitt passi sem best og bjóðum upp á reglulegar stillingar eftir þörfum.

Greiðsluþátttaka

Við svörum með ánægju öllum spurningum um kostnað við kaup á stoðtækjum.

Tilvísanir

Hafðu samband við ForMotion Stoðtækjaþjónustu til að sjá hvort þú þarft tilvísun fyrir þá þjónustu sem þú óskar eftir.
Hafðu samband
FAQ

Algengar spurningar

Við höfum tekið saman svör við algengustu spurningunum um stoðtækjaþjónustu okkar og þá sérfræðiráðgjöf sem við bjóðum upp á.

Hvernig panta ég tíma?

Til þess að panta tíma hjá stoðtækjafræðingi getur þú sent okkur tölvupóst eða haft samband við okkur í síma 515 1300.

Þarf ég tilvísun frá lækninum mínum til að heimsækja ForMotion Stoðtækjaþjónustu?

Til að eiga rétt á greiðslu eða endurgreiðslu þarftu tilvísun frá lækni eða sérfræðingi. Ef þú ert að leita að hjálpartækjum sem þú ætlar að borga fyrir sjálfur er tilvísun ekki nauðsynleg.

Við hverju get ég búist við í minni fyrstu heimsókn?

Fyrsta heimsókn þín til ForMotion Stoðtækjaþjónustu mun byrja með viðtali. Við munum spyrja þig spurninga um hvernig þér líður og hverju þú vilt áorka með því að vinna með okkur. Þetta hjálpar okkur að átta okkur á þínum þörfum og hefja samtal um hvaða lausn gæti hentað þér best. Eftir stutta líkamlega skoðun gætum við tekið gifsafsteypu, þrívíddarskönnun eða aðrar mælingar, allt eftir því hvaða lausn þú þarft og hentar þér. Við höfum fjölda lausna á lager hjá okkur, en ef við þurfum að búa til sérsniðna lausn, munum við skipuleggja tíma fyrir þig til að prófa hana og fá hana rétt stillta af stoðtækjafræðingi.

Hvers konar greiðslumáta samþykkið þið?

Þú getur greitt með reiðufé, debetkorti eða kreditkorti hjá okkur. Í mörgum tilfellum greiða Sjúkratryggingar Íslands hluta af kostnaði við kaup á hjálpartækjum, en til þess þarf að fá "Umsókn um styrk til kaupa hjálpartækis" útfyllta af lækni. Við erum með samning við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) varðandi kaup á stoðtækjum og spelkum. Sérfræðingar okkar leiðbeina fúslega um val á stuðningstækjum, m.a. með tilliti til samnings SÍ.
Upplýsingar

Gagnlegar upplýsingar

Við gerum okkur grein fyrir því að það getur verið erfitt eða ruglingslegt að finna rétta hjálpartækið. Þú getur fundið gagnlegt efni hér á síðunni okkar og ekki hika við að hafa samband við okkur til að fá svör við spurningum þínum. Við erum hér til að leiðbeina þér í gegnum allt ferlið.
Staðsetning

Hvar er ForMotion Stoðtækjaþjónusta til húsa?

Verið velkomin til okkar að Grjóthálsi 1-3, við erum með opið alla virka daga frá 08:30 – 16:00.
Nánari upplýsingar
ForMotion_map-graphic_en-global
Velkomin til ForMotion
Mannauður
Laus störf
Hafðu samband
Hvar erum við?
Skjólstæðingar
Upplýsingar
Algengar spurningar
Fagaðilar
Um ForMotion
Veldu land
Iceland
Íslenska
© 2025, ForMotion Stoðtækjaþjónusta